EUROMAC lokkur býður mun fleiri möguleika heldur en eru nauðsynlegir fyrir venjulega götun og stönsun. Óvenjuleg verkefni sem eru jafnvel ekki leysanleg með mun dýrari vélum eru leyst á auðveldan máta.
L- land t.d. gerir mögulegt að vinna staka búta, þykkar plötur og jafnvel forbeygt efni.
Sérstakar klemmur geta tekið stykki með flönsum eða mótaða ávala hluti án árekstra.
Hinn einstaki endurstaðsetningar möguleiki gerir EUROMAC lokkakerfum mögulegt að vinna langar plötur eða stykki, hægt er að forrita í einni plötu allt að 10 000 mm lengd.
EUROMAC sér til þess að stönsun eða formbeygju er auðveldlega stýrt með nákvæmri stillingu á slaglengd verkfærisins.
LETUR eða skrift er auðvelt að leysa með Mate’s® Sheetmarker™. Demants oddur skrifar í plötuna eða jafnvel grefur rönd. Algjör samhæfing á öllum ásum gerir mögulegt að mynda allskonar letur eða teikna, merkja eða skreyta.
Öflug MERKJA aðgerð með Mate's® Center Point™ verkfæri. Með slagafjölda yfir 1000 slögum og algjörri samhæfingu ása í bogafærslu er auðvelt að setja vinnslumerki fyrir næstu vinnslu (beygja - festa - punkta) vörunr eða FYRIRTÆKJA MERKI. Lokkar og verkfæri eru fyrir hendi á lager IÐNVÉLA.
Hafir þú sérstaka vinnslu sem þarf að leysa hafðu samband við þinn þjónustuaðila til að sjá hvernig EUROMAC LEYSIR MÁLIÐ.
Top